Færsluflokkur: Íþróttir

Hola í Höggi á erfiðustu par 4 holu í heimi

Já hann gerði sér lítið fyrir þessi gaur og fór holu í höggi á erfiðustu par 4 holu í heimi allt um málið með því að smella Hér

Kokteilboð hjá Lórenz fyrir herrakvöldið

party_time_topEnn og aftur ætlar Lórenz að leggja til félagsmiðstöð BirdieTravel og nú býður hann þeim sem tilheyra Birdie hópnum að koma kl. 18 í léttan fordrykk áður en haldið verður á Herrakvöld GKG. Eins og áður segir eru allir velkomnir á herrakvöld GKG óháð hvar þeir eru í klúbbi. Birdie-hópurinn stefnir á að fjölmenna á svæðið og nú þegar hafa Lórenz, Siggi Hlö, Kristinn, Óskar rakari, Bjarni mágur og Öddi málari bókað sig. Sissi píp, Siggi píp og Gummi Hi eru undir pressu að mæta og fyrr frýs í helvíti en að þeir mæti ekki - við bara trúum því ekki ef það gerist. Hvetjum alla aðra BT félaga að mæta, til dæmis Stjána Súsúkibilar, Steini Walt eða datt, Gísli bróðir og svo mætti lengi telja....Elli og Dóri the hobbits....


Meðíferð á herrakvöld GKG

Það eru nokkrir Birdie félagar búnir að boða komu sína á Herrakvöld GKG sem fram fer á föstudagskvöldið 17. apríl nk. Herrakvöldin eru fyrir alla velunnara golfs á Íslandi, það mega aðrir en GKG félagar mæta og skemmta sér enda fyrst og fremst verið að hittast, skemmta sér og styðja við bakið á afrekskylfingum. Við hvertjum alla að fjölmenna á Herrakvöld GKG því þar verður gaman!

herrakvold_2009_copy(1)


Fyrsti hringurinn á Íslandi þetta árið

Jæja þá er búið að renna fyrsta hringinn þetta árið, en Strandavöllur á Hellu varð fyrir valinu og má segja að völlurinn er í furðu góðu standi. Teigar eru nokkuð traðkaðir brautir í góðu lagi og grínin furðu góð, því jú það var nú snjór yfir öllu fyrir nokkrum sólahringum síðan. Get ég með góðri samvisku mælt með ferð á Hellu um páskanna.

Úrslit í Florida-golfmóti BirdieTravel

Nú er búið að krýna nýja heimsmeistara í golfi á Florida. Úrslit urðu eftirfarandi:

1. Kristinn tölvudúddi

2. Dóri fornleifadótagrafari

3. Siggi píp

4. Lolli Orange vann einnig næstur bíl í upphafshöggi

5. Elli hella varð einnig með stysta púttið

6. Öddi mál vann fyrir að vera oftast í sandi

7. Sissi píp næstur holu í 8 höggum

8. Captain Hlö vann lengsta drive

Varðandi búningakeppnina þá varð hún með frekar fræmri þátttöku en Lolli tók hana með því að mæta í gullskóm, já sagt og skrifað gullskóm. Kappinn hafði fyrir því að mála eitt af 8 pörum sínum með gullmálningu og kom hann sá og sigraði. Þar má segja að gullið hafi verið hans.

Óskum við öllum sigurvegurum til hamingju með árangurinn.


Fékk sinn fyrsta "örn" í dag!

Já undur og stórmerki gerast hér í Florida á hverjum degi. Annan daginn okkar hér úti, á seinni hring, var Siggi Hlö búinn að æfa vel létt vipp með 9 járni á 40 metra færi og viti menn, á 18. holu setti hann beint í holuna langt utan af velli, reyndar fyrir pari. Í dag setti Captain Hlö niður "örn" á 4. holu á Silver Spring Shores, vatnavellinum suður af Ocala. Hlö átti frábært teighögg og var 180 metra frá holu á miðri braut. Næsta högg með hálfvita lenti við hliðina á greeninu, smell hitti fíflið og var ósáttur við að vera ekki inná flöt í tveimur. Þá er tekin upp 9 járnið og létt vippa inná flötina og viti menn - setti beint í holu. Þess má geta að holan á undan er erfiðasta hola vallarins og fékk Hlö par á hana og 4 punkta. Fyrir örninn fékk hann svo 5 punkta - 9 punktar á tvær holur er bara frábært. Endaði á 27 punktum hehehe....vatnavöllur og tveir pakkar af boltum liggja nú hér í Guðs grænni náttúrunni. Meira seinna.

Mótadagurinn og mongólítar í heita pottinum

IMG 1633Þá er aðalmótinu lokið. Vinningslistinn verður birtur þegar af okkur rennur. Eina sem hægt er að birta opinberlega er þessi úrvals ljósmynd sem tekin var af keppendum rétt eftir mótið eða var það löngu eftir mót. Stefnan eftir pott er tekin á Coctail Lounge niðri á gatnamótum og eina vesenið er að enginn er hæfur til að keyra bifreið. Nenni ekki að skrifa meira en það er greinilegt að menn sakna Stonez Mr. Cab Driver sem ratar allt!!!

Er að uplóda helling af myndum á Facebook síðuna mína - Hlö out.....


Dagur 3

107 0037Þá er dagur 3 búinn og búið að kíkja í búðir og sækja þann "veika" sem kom með kvöldfluginu hingað til Florida. Já Kiddi er mættur og verður kynntur til leiks síðar hér á blogginu. Í dag spiluðum við Citrus sem er frábær um þessar mundir. Mjúkar brautir, allir teigar góðir og greenin sérstaklega góð, nánast PGA style rennsli. Það skilaði sér vel í skori dagsins sem var ekki það besta sem sést hefur. Sissi píp á það til að ganga á undan öllum öðrum og í dag munaði minnstu að Elli næði plömmer! Elli kallinn var að slá sinn bolta og fyrr en varir er Sissi Píp á miðri braut, fyrir boltanum hans Ella og allir æpa og boltinn flaug rétt yfir hausinn á píparanum sem rétt náði að beygja sig niður, já sannkallaður jarðarbolti.

Mynd dagsins er tekin eldsnemma í morgun fyrir utan húsið okkar.


Hér má sjá buxurnar umræddu .........

buxurEitthvað varð Capainninn dapur þegar hann opnaði pakkann en við náðum af honum mynd. Captainninn er að vinna í því að fá buxunum skipt.

Staðalbúnaður í sólbaði eftir golfhring

107 0028Captain Hlö og Dj Ötzi eru auðvitað langflottastir. Ekki bara líkamlega heldur kunna þeir að drekka eins og menn. Þeir voru að steikjast í heita pottinum eftir frábæra 2 hringi. Spiluðu báðir frábæra hringi ásamt Ella Jóns. Öddii spilaði á 83, Siggi á 89 og Elli á 90. Hér vantar bara Gumma Hi, Steina eða Stinna McGregory til að reyna að ná okkur. Vonum að Hellsiheiðin sé að opnast!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband