Fékk sinn fyrsta "örn" í dag!

Já undur og stórmerki gerast hér í Florida á hverjum degi. Annan daginn okkar hér úti, á seinni hring, var Siggi Hlö búinn að æfa vel létt vipp með 9 járni á 40 metra færi og viti menn, á 18. holu setti hann beint í holuna langt utan af velli, reyndar fyrir pari. Í dag setti Captain Hlö niður "örn" á 4. holu á Silver Spring Shores, vatnavellinum suður af Ocala. Hlö átti frábært teighögg og var 180 metra frá holu á miðri braut. Næsta högg með hálfvita lenti við hliðina á greeninu, smell hitti fíflið og var ósáttur við að vera ekki inná flöt í tveimur. Þá er tekin upp 9 járnið og létt vippa inná flötina og viti menn - setti beint í holu. Þess má geta að holan á undan er erfiðasta hola vallarins og fékk Hlö par á hana og 4 punkta. Fyrir örninn fékk hann svo 5 punkta - 9 punktar á tvær holur er bara frábært. Endaði á 27 punktum hehehe....vatnavöllur og tveir pakkar af boltum liggja nú hér í Guðs grænni náttúrunni. Meira seinna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju gamli Kv Gummi Hi

Gummi Hi (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 22:55

2 identicon

Algjör snilld hjá þér enda ertu að hitta fíflið eins og ég hef sagt.

p.s. Arna fær Örn á hverju kvöldi hahahaha

Stonez (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband