Nú er kominn mars sem er brottfararmánuður

Picture 018Sjá nú geta þeir sem ekki hlakka til ferðarinnar látið sér hlakka til, vegna þess að við förum út þann 20 þessa mánaðar.

Hér til hliðar má sjá Herra Hlö taka hobbita-stökkið sitt og hefur hann æft stíft allskonar fögn og hefur sett stefnuna á nýtt fagn við hvert birdie sem hann fær.

Ég vil minna menn á að fylla út á www.icelandair.is bæði APIS og ekki síður ESTA. Svona bara til að komast út þá er nauðsynlegt að fylla þetta út.

Nú er verið að setja upp keppnir í öllu því sem kemur að Floridagolfinu. Til að mynda er einstaklings- herbergis- bíla- og búningakeppni. Nú hefur komið upp ný hugmynd um að vera með nördakeppni, sem fellst í því að sá sem tekur flesta mölla er sigurvegari. Ekki spillir fyrir af vera utan við sig þegar leikið er. Mótanefndin á eftir að taka þessa nördakeppnisbeiðni fyrir á fundi sínum þann 1.apríl.

Hei það eru bara 19 dagar í brottför.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband