Félagsfundur GKG

Næstkomandi þriðjudag, þann 29. apríl, verður hinn árlegi félagafundur GKG haldinn upp í Golfskála.
Hefst fundurinn klukkan 20:00 og stendur eitthvað fram eftir kvöldi.

Eins og ávallt þegar félagafundur að vori er haldinn verður farið yfir stöðu mála hjá klúbbnum, en stjórnendur klúbbsins munu sjá um það. Guðmundur vallarstjóri mun einnig fara yfir vallarmálin og má búast við því að á þessum fundi verði hægt að fá einhverja hugmynd um hvenær völlurinn opnar fyrir sumarið.

Við hvetjum alla félagsmenn GKG ti! l að mæta á fundinn, sýna sig og sjá aðra og leggja drög að komandi golfsumri.

Stjórn og starfsfólk GKG

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband