John Daly tíar upp á bjórdós og slær!

Maðurinn er auðvitað LEGEND! Svona á að skemmta sér í golfi.


Kennsla í að sveifla eins og Tiger Woods (myndband)


Okkar menn alls staðar!

Núna er Capteinn Hlöðversson staddur í Boston í USA en vellir á New England svæðinu eru gríðarlega flottir og margir áhugaverðir vellir að skoða. Til Boston er líka beint flug Icelandair og því sérstaklega hentugt að henda sér yfir hafið og spila góða velli. Upplýsingar um velli og stjörnugjöf verður hér á blogginu innan tíðar.

Þessi Var flottastur á British open

Ian Poulter, U.S. Open, Torrey Pines

Útsendari frá Birdietravels á opna breska

Það er gaman að segja frá því að við hjá Birdietravels erum með útsendara á opna breska og það er engin annar en DJ ÖDZI og fáum við frekari fréttir af nýjustu tízku mótsins og kylfuvali þeirra.

Betra seint en aldrei

Jæja þá er komin tími til að læra hvernig á að framkvæma hina einu sönnu Golfsveiflu með því að smella Hér er hægt að sjá hvernig hún er framkvæmd ásamt fullt af öðru áhugaverðu kennsluefni.

Colin Montgomerie of Scotland chips the ball during a practice round at the Royal Birkdale golf course, Southport, England, Monday July 14, 2008. The 


Meistaramótum stóru klúbbanna lokið

Þá eru meistaramótum stóru klúbbanna lokið og í dag fuku nokkur þeirra um koll. Á Kili í Mosó var mótið flautað af á miðjum degi enda völlurinn á floti. Í GKG var mótið klárað með herkjum og endaði vel. Á lokafagnaði var ekki hægt að grilla enda rokið svo mikið að það þurfti 2 traktora til að halda samkvæmistjaldinu sem komið var upp fyrir hátíðina. Sá eina úr okkar hópi sem var eitthvað að gera var Steini Walters sem hreppti 3. sætið í 2. flokki á Kili í Gkj. Gummi Hi skeit á sig og varð neðstur á meðan konan hans varð í 2. sæti sem er frábær árangur hjá henni. Siggi Hlö náði takmarkinu að verða ekki neðstur í 3. flokki hjá GKG og það tókst þó svo að það væru 7 högg í þann næðst neðsta fyrir lokahringinn. Siggi spilaði þokkalega en þó yfir 100.

Hlín Hlö leiðir 3.flokk kvenna í GKj

Litla systir Captain Hlö og eiginkona Gumma Hi leiðir 3.flokk kvenna hjá GKj eftir fyrsta daginn. Í 3. flokki karla í  sama klúbbi keppa Dj Ötzi og Palli Skáti og gekk þeim þokkalega. Gummi Hi og Stonez hefja leik í dag. Athygli vekur að Lórenz spilar ekki á MMóti GKG í ár, hann stakk af til Spánar og segja menn nálægt honum að hann hafi ekki þolað pressuna eða athyglina.
Í GKG eru Samskipsgaurarnir að spila, Guðmundur Lúther að spila í  5. flokki og er í 3. sæti eftir 2 daga af þremur og Hjölli er að spila í 4. flokki og gengur ekki alveg eins vel og spáð var á Lengjunni,  hann er í 15. sæti eftir 2 daga ef þremur.


Meistaramótin komin á fullt

Nú eru Meistaramót klúbbanna að fara á fullt. Við munum reyna að  flytja fréttir af okkar mönnum í þessari viku.  Ef við á  ritstjórninni erum að gleyma einhverjum, þá má endilega senda okkur orð í eyra á siggi@pipar.is. GR og Bakkakot hefja sín MMót í næstu viku, þannig að þá er hægt að spila á þeim völlum á meðan aðrir eru með lokað. Í GKG er Mýrin opin fyrir golfara, 9 holur og frekar krefjandi völlur. Síðan er undanmót í International Pairs á laugardaginn og sunnudaginn á Bakkakoti  sem er nýlunda,  að hafa mót á meðan allir klúbbar  eru með  MMót en það er eiginlega snilld að vera með  flott mót þeim tíma vegna þess að  það taka ekki allir þátt í MMótum. Rétt er að taka það fram að Sissi Píp er kominn með þátttökurétt  til að spila á IP Iceland Finals í lok ágúst en hann og hans makkerur urðu í 2. sæti í undanmótinu hjá GKG.


Úrslitin í fyrstu undankeppni International Pairs í golfi

Undankeppni International Pairs á Íslandi.
Úrslit á International Pairs undanmótinu sem fram fór í dag á velli GKG í Garðabæ.

1. sæti
Kristófer Jónasson / Jónas Kristófersson 47 punktar
2. sæti
Sigþór Magnússon / Gísli Þorsteinsson 44 punktar (betri síðustu 6 holurnar)

3. sæti
Ólafur Örn Ólafsson/ Þóroddur Halldór Ragnarsson 44 punktar
4. sæti
Skúli Baldursson/ Jón Heiðar Baldursson 43 punktar
5. sæti
Magnús Gylfason/ Jónas Sigurðsson 42 punktar

Þeir sem að lentu í 3. - 5. sæti geta nálgast vinningana sína í Pro Shop GKG.

Sigurvegarar mótsins og liðið í 2. sæti hafa unnið sér keppnisrétt á úrslitamóti International Pairs á Íslandi 31. ágúst.

Fleiri undanmót verða haldin og mega keppendur reyna eins oft fyrir sér og þeir vilja.
Næstu undanmót fara fram á Bakkakoti 13. júlí, Oddi 19. júlí og Kili Mosfellsbæ 24. ágúst.
Pörin mega vera tveir karlmenn, tvær konur eða blönduð, skiptir engu, bara betri bolti.
Fleiri mót verða auglýst síðar.

Sigurparið í lokkeppninni á Íslandi fer og keppir á International Pairs World Finals í St. Andrews í Skotlandi 22. og 23. september 2008.

Mótið er heimsmeistaramót áhugamanna í betri bolta. Spiluð er punktakeppni, betri bolti.
Betri bolti þýðir að hvor leikmaður leikur sinn bolta til enda og það skor sem gefur fleiri punkta telur fyrir liðið.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband